18. september 2007 klukkan 19:33
Shit ég var búinn að gleyma því að ég væri með bloggsíðu, allavega þá er ég að vinna á fullu og lína líka, Hákon greyið er bara hent á milli barnapía eins og óhreinn sokkur.
Ég er sem sagt að vinna í byggingavinnu, er á námssamning og ætla að verða smiður, svo er ég að fara á stóra vinnuvélanámskeiðið í nóvember, gott að hafa þetta ef maður, svo er ég orðinn hálfgerður kranamaður í vinnunni fæ hífa og slaka og gera og græja.
MATUR. sjáumst
Benedikt Helgason
08. janúar 2007 klukkan 23:36
Jæja, þá er komið að því, ég fékk árskort og reiðhjól í jólagjöf frá Línu, ég er sem sagt að fara í ræktina og taka á því, reiðhjólið verður notað þegar það er engin snjór, svo þar fyrir utan er ég að hætta að reykja það er reyndar erfitt en ég held að það komi þegar ég ver í ræktina,
Benedikt Helgason
12. desember 2006 klukkan 04:43
Hvað er að fólki sem að getur ekki sýnt tillitssemi þar sem að umferðarslys hefur orðið. Í dag las ég frétt þar sem að fólk gat ekki slakað á og var að pirrast yfir því að Lögreglan lokaði veginum vegna banaslyss sem var á vesturlandsvegi í gær og var að hringja í lögregluna til að kvarta yfir því að það kæmist ekki leiðar sinnar, er fólk orðið svona stressað og HEIMSKT að geti ekki sýnt smá virðingu. það er einmitt helsta vandamálið í umferðinni í dag það er stressað og heimskt fólk sem heldur að það komist upp með allt. það ætti að senda alla íslendinga í endurmat á bílprófi og þá myndi umferð minnka til muna og strætó væri alltaf fullur af fólki, því að mínu mati erum um 50% islendinga með bílpróf vanhæfir undir stýri, og það ætti að þyngja bílprófið til muna til að fólk læri á umferðina, ef þú fellur í fyrstu tilraun þá þarftu þú að bíða í eitt ár til að fá að taka prófið aftur og ef þú fellur aftur þá annað ár og ef þú fellur í þriðja skiptið þá færðu ekki bílprófið.
Benedikt Helgason
22. nóvember 2006 klukkan 23:34
Ég hef verið að pæla ,hvað það fólk sem að valda stórhættu í umferðinni, sé að hugsa. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það er ekki að hugsa neitt, nema kannski að það komi ekki neitt fyrir það, en hvað með manninn sem er að labba í rólegheitum yfir gangbrautarljós og svo kemur þú blindfullur og veist ekkert hvað þú ert að gera og keyrir manninn niður og hann verður lamaður það sem eftir er.
Er ekki skárra að taka leigubíl og sækja svo bílinn daginn eftir eða skilja bílinn eftir heima þá er hann heima þegar þú vaknar. er það ekki?
Hraðakstur eða ofsaakstur, Það er nú klikkað gaman að standa drusluna og sjá mælirinn í 200, þegar þú horfir á mæirinn í eina sekúndu á 200 Km hraða þá fer bíllinn 55 metra á sekúndu, hvað ef það flýgur fugl í veg fyrir þig og þér bregður og ósjálfráð viðbrögð eru að sveigja frá, en þú gerir það ekki á 200 km hraða þú ferð útaf og veltur og ef þú varst nógu gáfaður að vera í belti og þar með bjarga lífi þínu á verður þú í hjólastól sem eftir er og viltu það? ef þú hafir ekki sett á þig bílbelti þá ert þú DAUÐUR. þá færðu aldrei að hitt vinina og fjölskyldu
Hvað þarf til að stoppa þig áður en þú drepur þig
Ég er ekki að segja að ég sé neinn engill í þessu ég hef reyndar aldrei keyrt fullur, en ég hef keyrt of hratt og meira að segja alltof hratt og ég tel sjálfan mig heppinn að vera lifandi, t.d einn góðan veðurdag þá var ég að keyra frá Reykjavík til Akureyrar og á þessum 4 tímum sem ég var á leiðinni þá var ég næstum því búinn að drepa mig og aðra sem ég var að mæta 3svar sinnum, keyrði næstum því aftan á bíl sem var að hægja á sér, mætti tvem bílum í einu, þ.e.a.s það var einn að taka framúr öðrum þegar ég mætti þeim og ég var hálfur útaf og á 160, þetta hefði ekki gerst ef ég hefði verið á löglegum hraða þá hefði ég verið nokkra kílómetra í burtu þegar hinn sami tók frammúr hinum bílnum, þetta var á sunnudegi að sumri til og margir bílar með tjaldvagna, svo að þarna var fjölskyldufólk á ferð með börnin sín, ég vildi ekki hafa það á samviskunni að hafa drepið börn, og ákvað þá að hætta þessari vitleysu og heimsku og ákvað að keyra almennilega eftir það og hef gert það. Ég vil endilega að þú farir að gera það líka.
Benedikt Helgason
17. nóvember 2006 klukkan 21:36
Takk allir sem eru sammál mér, fólk sem er ekki sammála mér og er að segja að ég sé fáfróður og að ég eigi að hugsa áður en ég framkvæmi, vil segja að ég bað ykkur ekki að koma á síðuna mína og ég setti ekki linkinn inná B2 ( það var vinur minn) og það sýnir bara óþroska hjá ykkur að geta ekki ignorað það sem þið eruð ekki sammála, og ráðast persónulega á fólk sem þið þekkið ekki og vitið ekkert um, það að þið fáfróða fólk segið eitthvað svona um mig fær mig bara til að pirra ykkur meira með skoðunum mínum, og þar með fá persónulegar árásir á mig sýna þannig umheiminum ennþá meira hvað þið eruð fáfróð,
Ég er ekki að tala um það fólk sem er bara ósammála mér, því það hafa komið comment sem hafa verið ósammála skoðun minni og verið á málefnanlegum nótum og það er bara af hinu góða.
Benedikt Helgason
16. nóvember 2006 klukkan 21:46
Ég held að Zoober morgunþátturinn á FM957 sé einn þreyttasti morgunþáttur í Íslensku útvarpi í dag, ég hlusta ekki mikið á þennan þátt en allavega á hverjum morgni þegar ég er á leiðinni í skólan þessar nokkrar mínútur á hverjum degi, Það eina sem þetta blessaða fólk talar um er hvort kynið sé betra og þau virkilega keppast um að tala um sitt ágæti, ég meina hversu ömurlegur og hugmyndasnauður útvarpsmaður þarftu að vera. og það eina sem er gert á þessari stöð er að gefa einhverja miða á bíosýningar (sem er ágætt fyrir fátæka námsmenn) og spila sömu lögin á klukkutímafresti (sem er allt í lagi ef þú fílar öll lögin)
Svo er Heiðar Austmann einhver sá leiðinlegasti og ófyndnasti útvarpsmaður sem ég veit um, Hann heldur að hann sé svo fyndinn og yndislegur að allir elski hann.
Ég er hér með officially hættur að hlusta á FM
Benedikt Helgason
31. október 2006 klukkan 23:33
Hæ fólk og aðrir hvað segið þið gott í dag? ég segi allavega allt skítt það er drullukuldi og mér líður ílla yfir því að þessi helvítis vetur er að koma.
Hey það var stuð í gær ég,lína, rína og himmi borðuðum saman ég og lína elduðum kjúklingarétt og nautakjötsrétt( sem var frekar sterkur vegna þess að ég opnaði vitlaust gat á pipardallinum og missti svolítið of mikinn pipar yfir kjötið en ég lét það bara eiga sig) við fórum svo til Rínu og Himmi, Rína djípsteikti rækjur og við borðuðum svo langt yfir okkur að þða hálfa hefði verið nóg, Svo endaði kvöldið með skítaskotum og slagsmálum á milli mín og Rínu (sem var stuð) hef reyndar ekki heyrt hvort að hún sé með handarfar á rassinum því að ég náði að rassskella hana allsvaðalega en ég fékk högg til baka svo að gamanið var fljótt að fara, en þetta kvöld var snilld.
Benedikt Helgason
30. október 2006 klukkan 06:24
1. Í New York City eru 11 bókstafir
2. Í Afghanistan eru 11 bókstafir
3. Í nafni Ramsin Yuseb (Hryðjuverkamaðurinn sem hótaði að eyðileggja Twin Tower árið 1993) eru 11 bókstafir.
4. Nafnið George W Bush er 11 bókstafir Þetta gæti allt verið hrein tilviljun, en nú verður þetta áhugavert:
5. New York er 11. fylkið
6. Í flugi 11 voru 92 farþegar (9 + 2 = 11)
7. Í flugi númer 77 sem einnig flaug á tvíburaturnana voru 65 farþegar (6 + 5 11)
8. Árasinn átti sér stað 11. september, sem er einnig þekkt sem 9/11 (9 + 1 + 1 =11)
9. Dagsetningin er eins og neyðarnúmerið í Bandaríkjunum 911 (9 + 1 + 1 = 11) Ennþá hreinar tilviljanir?? Haltu lestrinum áfram.....
10. Heildarfjöldi fórnarlambanna sem voru í flugvélunum sem notaðar voru í árásunum var 254 (2 + 5 + 4 = 11)
11. 11. september er 254. dagurinn á árinu (2 + 5 + 4 = 11)
12. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 3.11.2004 (3 + 1 + 1 + 2 + 0 + 0 + 4 = 11)
13. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 911 dögum eftir árásina á Twin Towers. ... og nú kemur það sem er ennþá merkilegra:
Á eftir fána Bandaríkjanna (Stars and stripes) þá er Örninn þekktasta merki landsins * Í eftirfarandi versi úr Kóraninum, hinni helgu ritningu Íslam, stendur: "For it is written that a son of Arabia would awaken a fearsome Eagle. The wrath of the Eagle would be felt throughout the lands of Allah and while some of the people trembled in despair still more rejoiced: For the wrath of the Eagle cleansed the lands of Allah and there was peace." Þetta er vers númer 9.11 í Kóraninum. Heldur þú ennþá að um hreinar tilviljanir sé að ræða? Prófaður þá eftirfarandi: * Farðu í Microsoft Word og gerðu þetta:
1. Skrifaðu með hástöfum: Q33 NY. Flugnúmerið á fyrstu vélinni sem var flogið á tvíburaturnana.
2. Litaðu Q33 NY
3. Breyttu stafastærðinni í 48
4. Breyttu leturgerðinni í WINGDINGS (eða WINGDINGS 1
Benedikt Helgason
26. október 2006 klukkan 01:23
Í dag var nokkuð sérstakur dagur í skólanum því að það var verið að veit Byggingadeild VMA viðurkenningu fyrir gott vinnuöryggi á deildinni. Þetta byrjaði allt kl 12 með ræðuhöldum og svo voru veitingar ( átti að vera pizza og gos) en varð að heitri samloku með skinku og osti sem var í rauninni köld, svo kl eitt þá fórum við inní C08 til að hlusta á 2 kalla sem vinna að öryggismálum við byggingu álversins á Reyðarfirði, Það var merkilegur fyrirlestur og magntölur á álverinu er stjarnfræðilegar eins og til dæmis steypan sem fer í álverið dugar í 1100 til 1200 meðalstór einbýlishús rafmagns og tölvukaplar eru um 350 km vatnslagnir eru um 67km, klæðningin sem er utan á álverinu er um 241000 fermetrar, ég man voðalítið eftir því sem að öryggisfulltrúinn sagði um öryggið því að ég var ennþá að leita að andlitinu eftir að ég missti það þegar kallinn var að segja okkur magntölurnar
Benedikt Helgason
24. október 2006 klukkan 03:20
Þá er komið að því nei djók, ætlaði bara að minna á könnunina
Ég hata sjálfstæðisflokkinn nema sjávarútvegsráðherrann fyrir að leyfa hvalveiðar, og hvernig væri að velta sér uppúr snjó og hlaupa (ég labba) niður á glerártorg og rassskella húsvörðinn ( sindri manstu 40 ára kallmenn)
Benedikt Helgason